Hanna í daglegu tali

Gaman að sjá þig ;-)

10.03.2007 15:50:13 / Hanna

Stal bíl...

hehehe nei nei, bara að láta ykkur langa til að lesa. En Hugga réð drauminn þannig að þetta væri bara af því að mig dreymdi um að stela bíl.

En búið að vera nóg hjá mér að gera þó að þessir mánuðir eftir áramót hafi átt að vera rólegir. Ég er hluti af teyminu sem stofnaði félagið Hagur Hafnarfjarðar sem er að berjast fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Það er miklu meira en nóg að gera í þeim félagsskap svo það jafnast á við nokkur fög að vera í þessu. Kvarta þó ekki, vona að niðurstaðan verði góð :D

Ég ákvað að ég yrði að blogga svo ég lenti ekki í flokknum "óvirk blogg" hjá honum bróður mínum :$

Ég hef svo sem ekki mikið að segja, skólinn gengur vel, er byrjuð á lokaverkefninu sem ég klára í sumar.

Ég og Rúnar förum til Skotlands til Nönnu 12. - 17.apríl, ég fer svo í próf 18. þannig að það er eins gott að fluginu seinki ekki mjög mikið ;)

Bið að heilsa í bili

Hanna Hagur Hafnarfjarðar ;)

www.hagurhafnarfjardar.is


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 23:23:50 / Hanna

Draumur í Bjöllu :)

Verð að segja ykkur stuttan en frábæran draum sem mig dreymdi.

Dreymdi að ég og Nanna vorum á Akranesi. Vegna einhvers vorum við að labba í gegnum hús hjá manni (heitir Gísli Ellerts og var fyrir nokkrum árum verktaki í Straumsvík ) og komumst að því að hann var að skilja við konuna sína. Við ákváðum þá þess vegna (skil það samt ekki) að stela bílnum hans sem var rauð ný Wolksvagen Bjalla, rosaflott og mjög gott að keyra hana :), ég sem sagt keyrði. Nema við keyrum af stað og förum að spá í hvar sé best að fara út úr bænum, löggan myndi örugglega sjá við okkur og leita fyrst á fáfarnari veginum svo við vorum að spá í að fara hina leiðina. Það kom hinsvegar ekki til að við þyrftum að ákveða okkur því löggan stoppaði okkur eiginlega strax. Við þurftum ekki einu sinni að fara út úr bílnum því löggan (einn kall sem ég man hvernig leit út en þekki ekki í raun) sagði að hann myndi sleppa okkur núna af því að hann vissi að við værum ekki nógu villtar til að okkur hefði verið alvara með þessu. Við brostum svolítið móðgaðar og þá vaknaði ég :$

 Mig var búið að dreyma eitthvað bull áður með að einhver krakki ældi í rúmið mitt hérna, bæði Heddi og Nanna voru hjá mér og við vorum að spá í hvar Dúddi væri eiginlega, en eins og ég segji það var eitthvað samhengislaust og skrýtið 8)

En takk fyrir óbilandi þolinmæði að kíkja eeeeeeeendalaust hingað inn

Takk í dag

ble í bli

Hanna hálfmóðgaða ;) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 17:00:07 / Hanna

Árangurinn af öllu puðinu :-)

Fag                              einkunn           röð_______     

Markaðsfræði II           7,5                   10-15 af 30

Aðgerðagreining           8                      7-12 af 31

Viðskiptasiðfræði          8,5                   4-17 af 49  

Þjónustustjórnun           8,5                   15-23 af 38

Alþjóðavæðing             8,5                   10-12 af 43

Hafði allavega rétt fyrir mér með það sem ég giskaði á, þ.e. 7+ í Markaðsfræði og 8,5 í Viðskiptasiðfræði, var að vonast eftir 8,5 í Aðgerðagreiningu en þetta er ágætt.

ble í bli, er að stelast í vinnunni :^)

kveðja

Hanna happyface


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 16:46:11 / Hanna

Fjórða og....

...síðasta prófið búið, Aðgerðagreining, :haha::haha::haha::haha::haha: og ég brosi hringinn, hlakka satt að segja bara til að fá einkunirnar, en þá er víst meiri hætta á að maður verði fyrir vonbrigðum, en við sjáum til :P:haha:

Jólavaka hjá Barðstrendingafélaginu á morgun klukkan 16:00 í Konnakoti, ég og Ólína ætlum að lesa upp úr bókum sem eru að koma út núna fyrir jólin. Allir að mæta og fá sér heitt súkkulaði og kökur og hafa það notalegt.

bestu kveðjur til ykkar allra sem hafið þessa ótrúlegu þolinmæði að kíkja hér inn :P

ble í bli
Hanna hamingjusama

» 15 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 18:36:28 / Hanna

þriðja...

...prófið í dag, Þjónustustjórnun, fæ eitthvað gott í því ;).... þá er bara eitt eftir, það er á laugardaginn næsta, fæ líka gott út úr því :P

farin að læra
bleeeee
Hanna hugaróri

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:47:07 / Hanna

Annað...

...prófið var í dag í Markaðsfræði, gekk vel fæ 7+ 8)

blí blí
Hanna hugsi

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 20:41:18 / Hanna

Prófin byrjuð

Fór í próf í dag í Viðskiptasiðfræði, gekk vel, fæ 8,5 8):$

Bið að heilsa Hedda Plebba og Pöllu Pensli og líka Heddagunna bró og Pöllu mágkonu :D

ble í bli
Hanna

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 22:39:53 / Hanna

Bingó og ball

 

Bingó og ball

 

Þann 28. október næstkomandi heldur Barðstrendingafélagið skemmtun í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.

 

Byrjað verður á því að spila bingó kl. 20:30 og eru vinningarnir ekki af verri endanum!

 

Um kl. 23 taka Skógarpúkarnir við og halda uppi fjörinu fram eftir nóttu.  Þess má geta að þeir eru allir úr Reykhólahreppnum.

 

Miðaverð er aðeins 1500 krónur.  Miðinn gildir bæði á bingóið og ballið og fylgir eitt bingóspjald með hverjum miða.  Svo er hægt að kaupa spjöld eins og hver kýs.  Ef einhver hyggst mæta bara á ballið er það sama verð.

 

Notum nú tækifærið og fjölmennum.  Hvað er betra en að eyða laugardagskvöldi með fólki að vestan? 

 

Endilega takið með ykkur gesti.



 




» 10 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 17:56:30 / Hanna

Hvar er allt bloggið?

Ég sé að fólk er ekkert að standa sig í því að blogga.....og þá kem ég bjargvætturinn og blogga þvílík ósköp að fátt eitt margt hefur harla sjalda sést né heyrst síðan á dögum pontíusar pílatusar........úbbbsss sorry....

nóg í bili í dag

kveðja

Hanna hálfviti 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 19:16:09 / Hanna

hálfa maraþonið

Fyrir utan hvað ég er ánægð með að hafa komist hálft maraþon, þá langaði mig að reyna að lýsa örlítið fyrir ykkur stemningunni hjá mér í hlaupinu.

Fyrir utan að ég hafði ekki græna glóru fyrir hlaupið um hvort ég kæmist alla leið eða ekki, þá var ég ekkert mjög stressuð, aðeins jú kvöldið áður en var svo bara spennt um morguninn. Spenningurinn magnaðist svo talsvert þegar ég fór að hita upp og rölti mér svo niður á brautina, þar beið ég svo í ca fimm til tíu mínútur áður en var ræst. Þá byrjaði sko stemningin því um leið og var ræst var byrjað að spila lag með U2 "It\'s a beautiful day" sem var alveg geggjað enda frábær dagur og ég U2 aðdáandi. Til hliðanna var svo gargandi fólk og klappandi og ég smælaði bara út að eyrum. Frá Lækjargötunni hlupum við vestur í bæ og í íbúðargötunum stóð fólk út á tröppum með potta og sleifar og hvatti okkur áfram og tvisvar á leiðinni var fólk komið út með tjald og græjur og var með músík í botni. Fyrra skiptið var nú bara eitthvað rólegt lag og svo sem allt í lagi með það en í seinna skiptið var verið að spila lag með Queen "Don\'t stop me now, I\'m having such a good time...." sem var auðvitað bara snilld og þá herti mín nú pínu á sér. Upp frá því fór að vandast málið því þá fór vindurinn að blása á móti, en þá var ég komin út á Sæbraut á leiðinni út í Sundagarða, og þetta var mjöööög erfið leið, vindur á móti, engin að hvetja, engin tónlist, ég orðin þreytt (þá komin um 11-12 km) og byrjaði fljótlega að labba öðru hvoru eftir það en bara mjög stutt í einu. Hefði aldrei trúað að það gæti verið svona andlega erfitt að hlaupa :S Svo kom ég að Eimskips-svæðinu í Sundagörðum og hélt að þar færi ég upp brekkuna upp á Sæbraut og byrjaði að hlaupa til baka en nei nei mér var vísað inn á svæði Eimskip og alltaf lengra og lengra niður eftir, hélt að bryggjan næði ekki einu sinni svona langt, hljóta að hafa stækkað hana fyrir hlaupið 8| En loksins fór ég að hlaupa í rétta átt, þ.e. upp að Sæbraut og byrja að hlaupa til baka en þá var mín nú orðin svo þreytt að lappirnar vildu ekki hreyfast eins hratt og hugurinn reyndi að segja þeim. En þetta hafðist að sjálfsögðu og þrátt fyrir allt þá tók ég fram úr fimm manneskjum á síðustu ca 3 km. Þegar ég kom svo inn í Lækjargötu stóð fólk til beggja hliða gargandi og klappandi og þá fóru lappirnar að hreyfast eitthvað að ráði og ég náði ágætis endasprett og þegar ég átti ca 100 metra eftir í mark stóð strákur ca 11-12 ára með blöðruhund og gaf mér í verðlaun :haha: og ég var auðvitað ótrúlega ánægð með það. Svo greip Rúnar mig þegar ég kom í mark og bar mig heim og gaf mér að borða þessi elska :haha::haha::haha:

Þetta var alveg frábær dagur og ég mæli eindregið með að við fjölmennum á næsta ári í þetta og höldum svo skólalokapartýið mitt um kvöldið ;)

Þið getið skoðað mynd af mér að koma í mark á:

http://www.asiphoto.net/recent_events.html?&asievent=0140

(skrampans linkurinn virkar stundum ekki nema þið "copy"ið hann og "paste"ið, fer annars bara inn á bévítans centralinn)

sláið inn númerið 1466 í Bib # og svo á "start search" og þá eiga að koma tvær myndir af mér....

....og þar getið þið séð að ég held á blöðru-hundinum góða ;)

Ble í bli

Hanna hálfa


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 16:33:13 / Hanna

Frétt dagsins

Schumacher hættir keppni

Michael Schumacher, sigursælasti ökuþór formúlu-1, mun hætta kappakstri í vertíðarlok, að því er Ferrariliðið staðfesti í dag. Einnig staðfesti Ferrari þann orðróm sem lifað hefur góðu lífi í um það bil ár, að Kimi Räikkönen verður ökuþór þess á næsta ári ásamt Felipe Massa.

stolið af http://www.mbl.is/mm/sport/formula/frett.html?nid=1222990


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 16:48:46 / Hanna

Júhúúú ;-)

Fréttir dagsins og næstu daga eru þessar:

 Takið frá laugardaginn 28.október því sá dagur verður rosalega skemmtilegur fyrir þá sem verða þar sem við verðum.  Haustballið okkar verður á þessum degi og hljómsveitin að þessu sinni verður engin önnur en Skógarpúkarnir, sem inniheldur barðstrendingana Lolla, Óskar og Geira. Þeir spila alla tónlist milli himins og jarðar, gömlu dansana, kokkinn, diskó, rokk, bara hvað sem beðið er um, algjörir snillingar á ferð.

Við munum hittast fyrir ballið og gera eitthvað skemmtilegt sem verður auglýst nánar síðar.

Endilega látið þetta berast til allra að vestan, hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki, allir eru velkomnir að sjálfsögðu, því fleiri, því betra og skemmtilegra.

Sjáumst hress og kát

kveðja

Hanna

stolið af http://hannafd.blog.is/blog/bardstrendingur/ :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 16:13:58 / Hanna

Afrek og undur nýliðins mánaðar :-)

Jæja, þá er hann Gunni bró búinn að eiga afmæli í þrjá mánuði og hefur ýmislegt gerst á þeim tíma, þó ágústmánuður beri þar af.

- Fyrsta afrekið og það stærsta að öðrum ólöstuðum, var það að ég eignaðist litla dásamlega frænku, sem er Pálínu og Hedda að þakka, takk fyrir það og til hamingju :haha: Þau geta hins vegar þakkað Guði og lukkunni fyrir það að hún virðist ætla að verða alveg eins og ég...:haha::haha::haha: Hún fæddist mánuuði fyrir tímann...eins og ég, mældist 48cm og 12 merkur.....ég mældist 49cm og 11 merkur, hún er með ótrúlega slétta og fallega húð..........eins og ég, ótrúlega falleg............eins og ég, með dökkt hár...........eins og ég, ljóngáfuð.............eins og ég, óendanlega hógvær.................eeeeeins og ég, fædd í ágúst.............eins og Nanna, frábær blanda 8|8|;)

- Annað afrekið var nú það að ég eignaðist þrítuga systur, það var alveg ágæt tilfinning nema að ég hefði viljað geta fagnað því með henni. Til hamingju með það elsku Nanna systir.

- Þriðja afrekið var að ég hljóp hálft maraþon í Reykjavíkur-maraþoninu, labbaði reyndar inn á milli, á milli 12. og 20. km, hef sennilega labbað um 3 km í heildina. Ég var hins vegar lengi að þessu, en þó bara á þeim tíma sem ég setti mér. Áætlaði mér þrjá klukkutíma og var 2:58:26, mjög stolt af sjálfri mér og ætla aftur á næsta ári og þá á tímanum 2:03:04, er byrjuð að æfa ;)

- Fjórða afrekið var að ég náði ágúst-prófinu, er ekki alveg komin með lokaeinkunn en hún verður á milli 7 og 8, mjög sátt við það þar sem lítið var lesið í öllum asanum :D

- Fimmta afrekið er að ég byrjaði í fimm fögum í skólanum og er að spá í að halda því þannig, þá þarf ég "bara" að taka þrjú eftir áramót, eitt í maí og svo ritgerðin næsta sumar sem ég ætla að skila 17.ágúst og þá verður barasta mín orðin viðskiptafræðingur, hleyp svo maraþonið 18.ágúst og svo stooooooóóór veisla og ykkur er boðið :haha::haha::haha::haha::haha::haha:

En best að láta ykkur ekki fá sjokk yfir hvað ég skrifa mikið, svo bú í bli.

ble í bli

Hanna hógværa


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 08:08:37 / Hanna

AAAmmmmmmmmmmmmmæli

Hann á afmæl´í dag

Hann á afmæl´í dag

Hann á afmæl´ann HeddiGunni

Hann á afmæl´í dag

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU BRÓÐIR 8)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7